Það sem gamlir kveða......

Knitting

Einn daginn fór gömul kona með fulla tösku af peningum í banka.

Við afgreiðsluborðið sagði hún að hún vildi bara tala við bankastjórann,

um að opna sparireikning: „Þetta eru miklir peningar, þú skilur."

Eftir langar rökræður var konunni fylgt til bankastjórans -

viðskiptavinurinn er konungur!!

Bankastjórinn spurði um upphæðina sem konan vildi leggja inn.

Hún sagði honum að það væri um 50 milljón evrur að ræða. Hún tæmdi töskuna

fyrir hann. Auðvitað varð bankastjórinn forvitin um hvaðan allir þessir

peningar kæmu.

„Kæra frú, það kemur mér á óvart hversu mikla peninga þú hefur - hvernig

stendur á því?"

Gamla konan svaraði: „Mjög einfalt. Ég veðja!"

„Veðjar?" spurði bankastjórinn, „hvers konar veðmál?"

Gamla konan svaraði: „Jah, allt mögulegt. Til dæmis, veðja ég við þig,

uppá 25.000 evrur að eistun á þér séu ferköntuð!"

Bankastjórinn fór að hlæja og sagði: „Það er fáránlegt! Á þennan hátt

getur þú aldrei unnið svona mikla peninga."

„Jæja, eins og ég sagði áðan, þá er það á þennan hátt sem ég vinn mér inn

peningana. Ert þú tilbúin til að taka þátt í þessu veðmáli?"

„Auðvitað!" svaraði hann. Það voru jú miklir peningar í húfi.

„Ég veðja semsagt 25.000 evrum uppá að eistun á mér séu ekki ferköntuð."

Gamla konan svaraði: „Samþykkt, en þar sem þetta eru miklir peningar, má

ég þá koma við á morgunn, kl 10:00 með lögfræðinginn minn, svo að við höfum

líka vitni?"

„Auðvitað!" Bankastjórinn samþykkti.

Um nóttina var bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og skoðaði ýtarlega á sér

eistun, tímunum saman. Fyrst öðrumegin svo hinumegin. Að lokum með hjálp

einfalds prófs varð hann 100% öruggur. Hann myndi vinna veðmálið, alveg

viss!

Morguninn eftir kom gamla konan, kl 10:00 í bankann með lögfræðinginn sinn.

Hún kynnti mennina tvo hvor fyrir öðrum og endurtók veðmálið uppá 25.000

evrur.

Og uppá nýtt samþykkti bankastjórinn veðmálið að eistun á sér væru ekki

ferköntuð. Eftir það bað hún hann um að taka niður um sig buxurnar til að

skoða málið (punginn) einu sinni.

Bankastjórinn tók niður um sig buxurnar, gamla konan kom nær, skoðaði

punginn í rólegheitum og spurði hann varlega hvort hún mætti koma við

eistun.

Mundu eftir að það eru miklir peningar í húfi.Money

„O.K." sagði bankastjórinn öruggur.

 Accountant

„Þetta er 25.000 evra virði og ég skil vel að þú viljir vera viss."

Þá kom konan enn nær og hélt eistum mannsins í lófa sér.

Þá tók bankastjórinn eftir því að lögfræðingurinn var farinn að berja

hausnum á sér við vegginn.

Bankastjórinn spurði konuna: „Hvað er að lögfræðingnum þínum?"

Hún svaraði: „Ekkert, ég veðjaði við hann, uppá 100.000 evrur að ég

skildi í dag kl 10:00 hafa eistun á bankastjóra í hendi mér." Og hvað er þetta sagði sú gamla og togaði örlítið í .......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Heidi Strand, 11.4.2008 kl. 13:32

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Óskar Arnórsson, 11.4.2008 kl. 20:29

3 Smámynd: Örvar Már Marteinsson

Svona á að fara að þessu!

Örvar Már Marteinsson, 12.4.2008 kl. 00:34

4 identicon

Það verða allir bankastjórar skíthræddir núna við kúnnana ...

Maddý (IP-tala skráð) 13.4.2008 kl. 18:30

5 Smámynd: Halldór Þórðarson/dóritaxi

Við gömlu Grandma Loves You

Halldór Þórðarson/dóritaxi, 14.4.2008 kl. 00:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband