Alladín.

St. Basils Cathedral Kona fann Alladín-lampa liggjandi í fjörunni.

Hún tók hann upp, pússaði hann og hvað haldið þið?

Út úr lampanum steig andi. Furðu lostin konan spurði hvort hún fengi þrjár óskir uppfylltar.

Andinn svaraði: " Neeei--- vegna verðbólgu, stöðugs samdráttar, lágra

launa í löndum þriðja heimsins og heiftarlegrar samkeppni um allan heim, get

ég aðeins veitt þér eina ósk og hvers óskar þú þér nú ? "

Án þess að hika sagði konan : " Ég óska friðar í Mið-austurlöndum. Sérðu

þetta kort ? Ég vil að þessi lönd hætti að berjast hvert við annað."

Andinn leit á kortið og hrópaði : " VVVWaaaááááá, er ekki í lagi með þig

manneskja ! Þessi lönd hafa átt í stríði í þúsundir ára. Ég bý yfir

miklum mætti, en svona rosalega máttugur er ég ekki ! " " Ég held að þetta sé

ekki framkvæmanlegt, þú verður að óska þér einhvers annars. "

Konan hugsaði sig um augnablik og sagði svo: " Okey, ég hef aldrei

getað fundið rétta manninn, þú veist : sem er tillitsamur, skemmtilegur,

finnst gaman að elda, hjálpar til við að þrífa húsið, er góður í rúminu,

semur við fjölskyldu mína, er ekki alltaf að horfa á íþróttirnar og er mér trúr.

Já, það sem ég óska mér er : Góður maður ! "

Andinn gaf frá sér langt andvarp og sagði :

" Láttu mig sjá þetta fjandans kort " Kicking Dirt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband