11.3.2008 | 20:00
gift eða ekki gift.
Maður og kona sem höfðu aldrei hist áður, en voru bæði gift öðrum aðilum, höfðu verið bókuð í sama lestarklefann á ferðalagi. Eftir frekar vandræðalega stund og óþægilegar mínútur yfir því að þurfa að deila klefa, voru þau bæði orðin mjög þreytt og sofnuðu fljótlega.Hann í efri koju og hún í neðri kojunni. Um kl 1.00 um nóttina hallaði maðurinn sér yfir kojuna og vakti konuna blíðlega. Pst...pst.... sagði hann. Fyrirgefðu frú að ég sé að trufla þig en viltu vera svo væn að opna skápinn fyrir mig og rétta mér annað teppi, mér er svo kalt. Ég hef betri hugmynd, sagði hún. Hvernig líst þér á að við látum eins og við séum gift - Bara í nótt ? VÁÁ - það er frábær hugmynd svaraði hann.
Farðu þá og náðu í þitt andsk... teppi sjálfur"
Eftir augnabliksþögn - þá rak hann við.
Athugasemdir
kaffið smakkast betur með smá spaugi.
Halldór Þórðarson/dóritaxi, 11.3.2008 kl. 21:56
Menn sem skrifa svona fallega um konur, eru ekki kvennhatarar.
Jón Svavarsson, 12.3.2008 kl. 12:29
Þær eru okkar betri helmingur
Halldór Þórðarson/dóritaxi, 12.3.2008 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.